rafbaekur jpg

Fréttir
Maxímús Músíkús er alveg dansandi glaður þessa dagana. Það er ekki skrýtið. Nýlega kom út ný bók um þessa tónelsku mús sem heitir Maxímús Músíkús bjargar ballettinum og þar að auki mun Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja nýja ævintýrið í Hörpu, laugardaginn 19. maí kl. 14 og 17. Það skemmtilegasta sem Maxímús Músíkús veit eru sinfóníutónleikar og þar að auki munu nemendur úr Listdansskóla Íslands koma fram og sýna dans. Tónlist og dans ...
Loksins eru hinar mögnuðu skáldsögur Kristínar Marju Baldursdóttur um Karitas Jónsdóttur aftur fáanlegar. Fyrsta bókin um Karitas, Karitas - án titils, sem kom út árið 2004 sló rækilega í gegn og seinni bókin, Óreiða á striga, gaf henni ekkert eftir í vinsældum. Bækurnar um Karitas eru uppáhaldsbækur fjölmargra Íslendinga og hafa hlotið ýmsar viðurkenningar, m.a. var sú fyrri tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og saman fengu þær Fjöruverðlaunin. Þær eru líka smám ...
Það er ekki skortur á spennu og tryllingi í bókmenntunum en nýlega komu út þrjár gæða spennusögur hjá Forlaginu. Lærlingurinn kemur hrolli í hörðustu lesendurna og er best lýst þannig að fólk ætti að læsa að sér og spæna hana í sig. Þetta er svo sannarlega bók sem fær taugarnar til þess að titra. Dauði næturgalans er þriðja bókin frá höfundaparinu Kaaberbøl og Friis sem fjalla um hjúkrunarkonunu Ninu Borg. Nina ...
Það ætti ekki að hafa farið framhjá mörgum að í sumar verða Ólympíuleikarnir haldnir í London. Á sama tíma verða haldnir Ólympíuleikar í ljóðlist og Gerður Kristný verður fulltrúi Íslands þessari stærstu ljóðahátíð Bretlands í sumar.  Á hátíðinni verður einn fulltrúi, eitt skáld, frá hverju Ólympíulandi og þar á meðal tvö nóbelskáld og fleiri kanónur. Gerður Kristný hefur vakið mikla athygli með ljóðabókum sínum, hefur hlotið margs konar viðurkenningar, fengið Íslensku ...
Nýjasta bók James Patterson, Feluleikur, sem hann skrifar í samstarfi við Michael Ledwidge fær fantafínan dóm í Morgunblaðinu. Patterson er gjörsamlega óstöðvandi í spennusagnaframleiðslu sinni en er langt frá því að vera útbrunninn. Hann heldur lesendum sínum algjörlega við efnið! Í dómi Önnu Lilju Þórisdóttur í Morgunblaðinu er tekið undir þetta og sagt að „[Patterson] kunni svo sannarlega sitt fag sem er að skrifa hraðar, æsilegar og umfram allt skemmtilegar afþreyingarbækur ...

Nýjar bækur | Spennusögur | Barnabækur | Skáldsögur | Ljóð
karfan mín
Leita